Amtsbókasafnið tekur vel á móti Þórunni Erlu-Valdimarsdóttur og Lilju Sigurðardóttir á föstudaginn.
Lilja Sigurðardóttir les upp úr bók sinni Fyrirgefning og Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir upp úr Mörg eru ljónsins eyru. Báðir höfundar hafa notið mikilla vinsælda á Amtsbókasafninu og það er sannur heiður að fá þær stöllur í heimsókn. Þórunn mun einnig minnast á bók sem hún skrifaði með Megasi, Dagur kvennanna: Ástarsaga.
Lilja og Þórunn munu einnig selja bækur sínar á góðu verði og eflaust árita verk sín.
Upplesturinn hefst klukkan 17.15 og eru allir velkomnir.