Gleðilega þjóðhátíð!

Það er kominn 17. júní!
Það er kominn 17. júní!

Ísland, farsælda frón og hagsælda hrímhvíta móðir, hvar er þín fornaldar frægð, frelsið og manndáðin best?

Allt er í heiminum hverfult, og stund þíns fegursta frama lýsir sem leiftur um nótt langt fram á horfinni öld.

Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart.

Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðis hetjurnar góðu austan um hyldýpis haf hingað í sælunnar reit.

Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti, ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt.

Hátt á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur ofan í Almennagjá, alþingið feðranna stóð.

Þar stóð hann Þorgeir á þingi, er við trúnni var tekið af lýði.

Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll.

Þá riðu hetjur um héruð, og skrautbúin skip fyrir landi flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim.

Það er svo bágt að standa í stað, og mönnunum munar annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið.

Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur?

Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?

Landið er fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið er skínandi bjart.

En á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut.

Nú er hún Snorrabúð stekkur og lyngið á Lögbergi helga blánar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik.

Ó, þér unglinga fjöld og Íslands fullorðnu synir, svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá.

Jónas Hallgrímsson (1807-1845)

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan