Gestkvæmt í ágúst

Góðir gestir í barnadeildinni :-)
Góðir gestir í barnadeildinni :-)

Það hefur verið gestkvæmt hjá okkur í ágúst og okkur reiknast til að hingað hafi komið tæplega 8500 gestir en það eru ríflega 400 manns á dag.

Allt þetta góða fólk hefur kíkt í blöðin, leitað upplýsinga á vefnum, lesið og lært og fengið bækur, tímarit og myndir að láni tæplega 15000 sinnum. Á sama tíma í fyrra var gestafjöldi svipaður en í ár höfum við skráð um 1000 fleiri útlán þannig að við sjáum ekki betur en að Akureyringar kunni vel að meta safnið sitt

Við gleðjumst yfir þessari góðu aðsókn og bjóðum alla gesti velkomna áfram!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan