Rithöfundurinn Gerður Kristný mun koma hingað norður og lesa fyrir mörg hundruð grunnskólanemendur upp úr nýjustu bók sinni, Prinsessan á Bessastöðum. Hún mun samt líta hér við á Amtsbókasafninu og lesa upp úr sömu bók.
Hér á Amtsbókasafninu er kaffiterían glæsilega Amts-Café, og því tilvalið að fá sér kaffi, koma með krökkunum og hlusta á bráðskemmtilegan upplestur.