Garn skiptimarkaður

Skiptimarkaður októbermánaðar er helgaður áhugafólki um prjón hekl og útsaum.

Garn, prjónar, heklunálar, uppskriftablöð og annað handavinnutengt eru meðal þess sem hægt er að skiptast á.

Markaðurinn stendur frá hádegi mánudaginn 21. október og fram að lokun kl. 16 laugardaginn 26. október.

Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan