Fyrir sumarfríið!

Kæru safngestir! Eruð þið á leið í sumarfrí og vitið ekki hvað þið eigið að lesa? Eða spila? Þá er útstillingarborðið í anddyrinu hjá okkur með svarið fyrir ykkur!

„Tilvalið í sumarfríið“ er yfirskriftin og þarna má finna svo margt milli himins og jarðar sem tengist sumarfríi. Þarna má finna eitthvað fyrir sjálft ferðalagið ásamt ferðasögum. Svo eru bækur fyrir matgæðinga (ehemm, grill grill...), fyrir unga fólkið og börnin og einnig fyrir hengirúmin sem þið hafið eflaust sett upp hjá ykkur! Kvöldvakan gæti innihaldið einhver af borðspilunum okkar og svo eru hin dásamlegu tímarit alltaf til staðar. Til hægðarauka er bókalisti á borðinu sem þið megið taka og fara yfir í rólegheitum ... kannski haka við það sem lokið er?

Kíkið endilega á borðið og fáið ykkur extra gleði með í sumarfríið. Þið eigið hana skilið!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan