19. nóvember kl. 17:00 – Steinunn Sigurðardóttir les úr bók sinni Fyrir Lísu
Fyrir Lísu er ellefta skáldsaga Steinunnar Sigurðardóttur. Bókin er sjálfstætt framhald af skáldsögunni Jójó sem fór sigurför í fyrra, hlaut verðlaun bóksala og einróma lof gagnrýnenda, full hús af stjörnum, og sérlega hlýjar undirtektir lesenda. Illugi Jökulsson skrifaði á bloggið sitt: “Það er ekki á hverjum degi sem gamall hundingi er beinlínis þakklátur fyrir að hafa lesið bók.”