(svar neðar) Kæru safngestir! Takk fyrir þolinmæði og skilning varðandi lengri sjálfsafgreiðslutíma hjá okkur í dag, vegna fræðslufundar starfsmanna. En við hendum hér inn einni laufléttri þraut sem tengist honum Sigga okkar!
Hann er ekki úti með ærnar í haga þarna heldur á fullu í afgreiðslunni að afgreiða lánþega. Safngestir koma ekki að tómum kofanum þegar þeir ná á Sigga!
En finnið endilega fimm breytingar, munið að kíkja reglulega á viðburðadagatalið hjá okkur (og samfélagsmiðlana) og svo vitið þið að það er opið á laugardögum hjá okkur í vetur frá 11 - 16! Vú hú!
Rétt svar eftir helgi - eigið hana góða!
Rétt svar: