(svar komið) Kæru safngestir og aðdáendur kaffihúsa. Eins og þið hafið vonandi tekið eftir, þá hefur Fjaka Crêperie Akureyri opnað kaffihús á Amtsbókasafninu á Akureyri. Við splæsum því í eina lauflétta getraun sem tileinkuð er kaffiihúsinu!
Þetta er eins og ávallt áður. Síðari myndin inniheldur fimm smávægilegar breytingar og þið eigið að finna þær. Mynd með réttum svörum birtist ykkur hér svo eftir helgi. En þið skuluð endilega koma og prófa veitingarnar hjá þeim Slavko og Karin, þrautahöfundur hefur smakkað ýmislegt þarna og bragðlaukarnir stíga sigurdans. Svo er þetta klassískt aftur: komum á kaffihúsið, lesum nýjustu tímaritin og gæðum okkur á kaffi og crêpes (eða frábærum vöfflufrönskum (nomm!!) eða ... eða ... mmm!).
Verði ykkur að góðu og við hlökkum til að sjá mikið líf þarna hjá Fjaka Crêperie.
Góða helgi!
Rétt svar: