(svar) Föstudagsþraut 2024 nr. 36 - Bókamarkaðurinn frábæri og fimm breytingar

(svar) Kæru safngestir! Nú er föstudagur og bókamarkaðurinn skemmtilegi er í fullu fjöri. Þvílíku demantarnir sem þið getið gripið með ykkur heim fyrir lítinn sem engan pening. Þess vegna er föstudagsþrautin helguð bókamarkaðnum og þið eigið að finna fimm breytingar!

Og það sem meira er ... vú hú! Vetrartíminn er hafinn og því er opið hjá okkur alla laugardaga í vetur frá 11-16!

Munið að vera dugleg að kíkja á viðburðadagatalið okkar og samfélagsmiðlana til að sjá hvað er að gerast hjá okkur.

En núna skuluð þið njóta þrautarinnar og helgarinnar og við sjáumst hress á kát á Amtinu á morgun kl. 11-16 og/eða á mánudaginn ... með rétt svar!

 

Auglýsing fyrir bókamarkað á Amtsbókasafninu á Akureyri

 

Rétt svar:

Auglýsing fyrir bókamarkað á Amtsbókasafninu

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan