(svar) Föstudagsþraut 2024 nr. 35 - Amtið í haustsólinni og sex breytingar!

(svar) Kæru safngestir! Föstudagur til "besta veðrið er alltaf á Akureyri" er mættur og föstudagsþrautin nýtir þessa blíðu í þrautina góðu. Og þar sem sólin vekur allt með kossi, þá eru breytingarnar sex í þetta skiptið!

Þrautin gæti reynst mörgum erfið en um að gera að hafa gaman af þessu og bíða svo spennt þar til rétt svar kemur á mánudaginn!

Og vitiði hvað?? Vetrartíminn tekur við hjá okkur næsta mánudag og það þýðir að við verðum með opið á laugardögum milli 11-16 í vetur (16.9. - 15.5.).

Viðburðadagatalið okkar stækkar og stækkar og svona ykkur að segja ... þá verða spennandi hlutir að gerast í vetur hvað varðar heimasíðuna!

Eigið frábæra helgi!

 

Mynd af bókasafni í sólskini um haust

 

Rétt svar:

Bókasafn í haustsól

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan