(svar!) Föstudagsþraut 2024 nr. 30 - Treyjusafn og fimm breytingar!

(svar!) Kæru safngestir, fótboltaunnendur og þrautaleysendur! - Gleðilegan föstudag og hvað gerum við þá?? Við leysum þraut! Og í þetta sinn er þrautin tengd nýjustu sýningunni okkar, "Treyjusafn Kristjáns Sturlusonar: Wycombe Wanderers."

Þessi stórskemmtilega sýning á fótboltatreyjum mun standa út ágúst og eitthvað inn í september, en þarna má sjá heimatreyjur Wycombe Wanderers frá 1993 ... og þær eru ekki fáar! Þú þarft ekki að hafa gaman af fótbolta til að njóta sýningarinnar, en eins og með svo margt - sjón er sögu ríkari!

Þrautin sjálf er eins og ávallt: fitlað hefur verið við fyrri myndina fimm sinnum! Þessar fimm breytingar eigið þið að finna og rétt svar verður svo birt eftir helgi!

Gaman gaman!

Eigið góða helgi!

 

Bækur, miðar, trefill og alls konar tengt fótboltaliðinu Wycombe Wanderers

 

Rétt svar:

Alls kyns varningur tengdur fótboltaliðinu Wycombe Wanderers

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan