Föstudagsþraut 2024 nr. 29 - Nýjar kvikmyndir og fimm breytingar!

Kæru safngestir! Útgáfa kvikmynda á mynddiskum er ekki alveg jafn mikil og hún var hér áður fyrr, þannig að nýjar myndir hjá okkur eru nýjar örlítið lengur. En þessi mynd er nýlega tekin af mynddiskahillunni sem geymir nýjar kvikmyndir hjá okkur og hér þurfið þið bara að finna fimm breytingar á milli mynda!

Helgin framundan er mikil gleðihelgi - verslunarmannahelgin sjálf! Það þýðir auðvitað að safnið verður lokað næstkomandi mánudag og við vonum að þið öll eigið framúrskarandi og fallega helgi.

Þau sem hafa engan áhuga á að ferðast um helgina eða tékka á dagskránni í bænum ættu endilega að birgja sig upp af góðum kvikmyndum til að horfa á ... jú jú, bækur og tímarit og spil eru fín ... en að horfa á kvikmynd er góð skemmtun. Og ef eina kvikmyndahús bæjarins heldur ekki eðlilegri starfsemi áfram, þá er nú gott að hafa aðgang að mörgum snilldarverkunum hér á Amtinu!

Sjáumst hress á safninu og eigið góða helgi!

 

Mynddiskar á hillum

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan