(svör komin!) Kæru safngestir! Helgin á leiðinni og auðvitað opið hjá okkur á laugardögum (11:00-16:00). En nú er það föstudagsþrautin! Hversu vel þekkið þið höfunda?
Þá er ekki verið að meina sko heimboð í kaffi eða eitthvað svoleiðis, bara svona hvernig höfundarnir líta út.
Og ef þið vitið hver er hvað, þá parið þið saman höfund við bók á þessari mynd. Sjö höfundar, sjö bækur ... sjö möguleikar.
Réttu svari verður svo skotið hingað inn eftir helgi, á mánudaginn!
Er þetta ekki allt á hreinu?
Góða helgi og hafið það yndislegt!
- - - - - -
Hér fyrir neðan er mynd sem sýnir hvaða höfundur skrifaði hvaða bók: