(Svör komin!) Föstudagsþraut 2023 nr. 32 - Tíu breytingar!!

(Svör komin!) Kæru þrautaelskandi safngestir! - Nú er föstudagur til fjár runninn upp og laugardagur til lukku framundan, ásamt flottri helgi! Eruð þið til í smá þraut??

Hún er nefnilega tvöfalt stærri en venjulega þar sem þetta er ... eh ... ja, sko, það er engin sérstök ástæða. Módelin á myndinni eru tveir frábærir starfskraftar okkar á bókasafninu, Aija og Hrönn, og breytingarnar urðu allt í einu tíu!

Já, þið heyrðuð það rétt! Tíu breytingar! Tvöfalt gaman þessa vikuna.

Hvað gerist föstudaginn 13. október??? Du du duuuuuhh!

Eins og ávallt kemur rétt svar eftir helgi og þið munið að vera dugleg að kíkja á viðburðadagatalið okkar, fylgjast með okkur á samfélagsmiðlunum og muna eftir laugardögunum hjá okkur í vetur!

Og já ... munið að fara vel með gögnin! Ekki geyma bækur í köldum bíl allan daginn meðan þið eruð í vinnunni, hafið þau frekar inni í hlýjunni og skilið þeim svo. Kuldi og pappír eru ekki bestu vinir. Nema bókin Kuldi ... du du duuuhhh!

Eigið góða helgi!

Mynd af tveimur konum fyrir framan bókahillur með nokkrum bókum

 

Rétt svör:

 

-

-

Tvær konur haldandi á bókum

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan