Fjallkonubrjóst

Göngum saman!
Göngum saman!

Styrktarfélagið Göngum saman safnar peningum og veitir styrki til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Ein af fjáröflunum á þessum vetri er að prjóna húfur sem heita Fjallkonubrjóst.

Nokkrar konur hafa hist tvö kvöld á Kaffi Ilmi og svo eitt kvöld á veitingastaðnum Silvu til þess að prjóna en nú er komið að því að selja húfurnar.

Þær mæta á Kaffi Ilm á Amtsbókasafninu, laugardaginn 16. nóvember frá kl. 13:00-15:00  til þess að selja þær. Stutt kynning á félaginu og ljúfa harmonikkutónlist.

Fjallkonubrjóst

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan