Engin millisafnalán afgreidd í sumar - Feðraorlof og mannekla

BækurEngin millisafnalán verða afgreidd á Amtsbókasafninu á Akureyri í sumar. Þar sem umsjónarmaður millisafnalána er að fara í feðraorlof frá 1. júní til 1. september, og vegna manneklu á safninu, verður ekki hægt að panta hjá okkur millisafnalán.

Pantanir á millisafnaláni minnka mikið á sumrin og vonum við að þetta verði ekki til óþæginda.

Þeir sem reyna að panta í gegnum Gegni fá upp villumeldingu um að ekki sé hægt að panta en þeir sem eru með bækur í láni þurfa að sjálfsögðu að skila þeim á réttum tíma. Þeim verður komið aftur á sitt safn.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan