Við viljum benda safngestum á að í gangi eru smávægilegar breytingar á 1. hæðinni, sem gera aðgengið að handbókadeild og lestrarsal mun betra. Nú hefur gangurinn á milli Blindrabókasafnsbóka og söluborðs breikkað, meira rými er fyrir leitartölvuna og ljósritunarvélina, kósíhornið undir stiganum hefur minnkað örlítið en ekki mikið. Á næstu dögum munu frekari breytingar líta dagsins ljós og vonandi verður þetta til þess að notkun handbókadeildar og lestrarsals aukist.