Í baráttunni fyrir mannréttindum átt þú öflugt vopn. Vopn sem getur breytt heiminum.
NAFNIÐ ÞITT
Nýttu það á alþjóðlegu bréfamaraþoni Amnesty International til að skrifa undir kort til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi. Tilbúin bréf til stjórnvalda verða á staðnum. Þú getur einnig sent kort til fórnarlamba mannréttindabrota.
Þetta er í áttunda sinn sem bréfamaraþonið er haldið á Íslandi en í fyrra sendum við rúmlega 3000 bréf og kort til stuðnings fórnarlömbum mannréttindabrota um heim allan. Samtímis munu fara fram bréfamaraþon í Amnesty-deildum í yfir 60 löndum víða um heim.
Bréfamaraþonið fer fram um land allt í kringum 10. desember í tilefni af alþjóðlegum mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna. Í ár stendur til að hafa bréfamaraþon í Reykjavík, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Grindavík, á Akranesi, Vestmannaeyjum, Selfossi, Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, og í Höfn í Hornafirði.
NÁNAR
Við viljum biðja þig um að gefa eina til tvær klukkustundir af tíma þínum í þágu þolenda mannréttindabrota á þeim stað sem næstur þér er og auglýstir eru hér að neðan.
Undanfarin ár hefur myndast skemmtileg jólastemning en kaffi, kakó og piparkökur verða að sjálfsögðu á boðstólum.
Við hvetjum þig til að mæta, leggja hönd á plóginn og njóta notalegrar jólastemningar á aðventunni.
Dagskrá bréfamaraþonsins fer fram á eftirfarandi stöðum:
Ísafjörður, í Edinborgarhúsinu 10. desember frá 14 til 17.
Höfn í Hornafirði, í Bókasafninu í Nýheimum 3. desember frá 11 til 16.
Egilsstaðir, í Húsi Handanna (Nían) 10. desember frá 10 til 17 og á Jólakettinum í Barra 17. desember frá 11 til 17.
Akranes, á Bókasafni Akraness frá 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins.
Vestmannaeyjar, á Bókasafni Vestmannaeyja, til 10. desember, á opnunartíma safnsins.
Reykjanesbær, á bókasafninu í Reykjanesbæ 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins.
Grindavík, á Bókasafninu í Grindavík frá 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins.
Selfoss, á Bókasafninu á Selfossi 4. til 14. desember á opnunartíma safnsins.
Hafnarfjörður, á Bókasafninu í Hafnarfirði 10. desember frá 11-15.
Reykjavík skrifstofa Amnesty International Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 10. desember frá kl. 13-18.
(texti og mynd eru tekin af heimasíðu Amnesty International á Íslandi. Þar er
einnig hægt að fá frekari upplýsingar)