Það er alltaf líf og fjör á bókasöfnum, er það ekki? Í Bandaríkjunum hefur umræðan um niðurskurð til bókasafna verið nokkuð mikil og fólk bregst misvel við. Starfsmenn svæðisbókasafnsins í Mið-Rappahannock tóku sig til og gerðu eftirfarandi myndband. Hressandi og skemmtilegt og lýsir starfinu á bókasafni mjög vel... hmm... Eða sjáið þið starfsmenn Amtsbókasafnsins fyrir ykkur í þessum ham?