Bókasafns- og upplýsingafræðingur á Amtsbókasafninu á Akureyri - Amtsbókasafnið á Akureyri óskar að ráða bókasafns- og upplýsingafræðing í 100% starf frá og með 15. september 2011.

Helstu verkefni eru:

·        Upplýsingaþjónusta og heimildaleitir

·        Almenn þjónusta við lánþega safnsins

·        Umsjón með millisafnalánum og tengsl við önnur söfn.

·        Vinna við vefi safnsins og framleiðsla stafrænna gagna

·        Vinna við skylduskil og skráning gagna

·        Verkefnisstjórn í ákveðnum samvinnuverkefnum safnsins.

 Hæfniskröfur:

  • B.A. eða starfsréttindagráða í bókasafns- og upplýsingafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Lipurð í samskiptum og rík þjónustulund
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.

 Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

 Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga og BHM

 Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar í síma: 460-1060.

 Nánari upplýsingar um starfið veitir Hólmkell Hreinsson í síma 862-6882 eða í netfangi: holmkell@akureyri.is

 Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

 Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins.

 Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2011.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan