Amtsbókasafnið á Akureyri óskar að ráða bókasafns- og upplýsingafræðing í 100% starf frá og með 15. september 2011.
Helstu verkefni eru:
· Upplýsingaþjónusta og heimildaleitir
· Almenn þjónusta við lánþega safnsins
· Umsjón með millisafnalánum og tengsl við önnur söfn.
· Vinna við vefi safnsins og framleiðsla stafrænna gagna
· Vinna við skylduskil og skráning gagna
· Verkefnisstjórn í ákveðnum samvinnuverkefnum safnsins.
Hæfniskröfur:
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga og BHM
Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar í síma: 460-1060.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hólmkell Hreinsson í síma 862-6882 eða í netfangi: holmkell@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins.
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2011.