Kæru safngestir! Bókamarkaðurinn er mættur aftur og verður nú í sýningarrýminu hjá okkur út mars-mánuð (ath. birgðir).
Eins og venjulega þá eru flestar bækurnar á 100 kr., 10 bækur kosta 700 kr. og 20 stk. 1200 kr.
Þessar upphæðir eiga líka við um mynddiska sem eru til sölu.
Tímaritin eru á 20 kr. stk. og þarna má finna erlendar bækur á 50 kr.
Á markaðinum verða líka ljóðabækur á 500 kr.
Margir demantar birtast á þessum bókamörkuðum okkar og væntanlega engin breyting á núna. Kíkið endilega á markaðinn, reglulega fyllt á!