Kæru safngestir! Nú er komið að því, ó já, það er komið að því! Nei, við erum ekki að tala um úrslit Söngvakeppninnar þetta árið (áfram ?), heldur BÓKAMARKAÐINN!!
Bókamarkaðurinn sívinsæli er sem sagt mættur aftur og verður nú í sýningarrýminu hjá okkur út mars-mánuð ... ef birgðir endast svo lengi :-)
Eins og venjulega þá eru flestar bækurnar á 100 kr., 10 bækur kosta 700 kr. og 20 stk. 1200 kr. Þessar upphæðir eiga líka við mynddiska sem eru til sölu. Tímaritin eru á 20 kr. stk. og þarna má finna erlendar kiljur á 50 kr.
Á markaðinum verða líka dýrari og eigulegri bækur, sem eru þá verðmerktar sérstaklega.
Margir hafa fundið marga demantana á þessum bókamörkuðum okkar og væntanlega engin breyting á núna. Kíkið endilega á markaðinn, reglulega fyllt á!