Í dag, föstudaginn 8. október 2010, mun Amtsbókasafnið á Akureyri halda upp á bleika daginn með ýmsum leiðum, eins og margur landinn.
Starfsmenn munu klæðast einhverju bleiku og svo verða ókeypis útlán á öllum mynddiskum sem innihalda eitthvað bleikt framan á hulstrinu. Skiptir engu hvort um er að ræða lítinn staf, stóran ramma, bakgrunn ... bara ef það finnst bleikt = ókeypis útlán! (munið samt að skila á réttum tíma, því það breytist ekkert :-) )
Sjáumst á bleikum degi! - Starfsmenn Amtsbókasafnsins á Akureyri