Bláar myndir - tilboðsmyndir á 100 kr. útlán

Í kvikmyndadeildinni er alltaf hægt að fá mynddiska á tilboði, þ.e. útlán sem einungis kostar 100 kr. Sömu reglur gilda auðvitað um þessi tilboð og aðra mynddiska, útlánstíminn er sá sami og ekkert hámark á því hvað fólk tekur mikið í einu. Dagssektir eru einnig þær sömu, þannig að ef þið takið t.d. einn tilboðsdisk og skilið honum einum degi of seint þá er sektin 170 kr. Vinsamlegast munið eftir þessu!

Þemu breytast sífellt í tilboðsmyndunum og hafa þau verið ansi fjölbreytt í gegnum tíðina. Núna eru til dæmis svokallaðar bláar myndir á tilboði, þ.e. myndir sem hafa sterkan bláan lit á kápunni (t.d. himinn eða haf).

Ef þið hafið uppástungur um þemu, þ.e. hvers konar myndir þið mynduð vilja sjá á tilboðsverði, þá endilega sendið póst á thorsteinn@akureyri.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan