Sýning á verkum úr Listasmiðju fyrir börn 8 – 12 ára þar sem eingöngu er unnið með endurnýtt hráefni.
Innblástur við verkefnið er afmæli Akureyrarbæjar. Hugmyndirnar eru fjölbreyttar og afraksturinnn mjög skemmtilegur!
Listasmiðjan er með aðstöðu í Punktinum Rósenborg og leiðbeinendur eru listafólkið George Hollanders, Sharka Mrnakova og Eygló
Antonsdóttir.
Sýningin stendur í rúma viku frá 22. júní -2. júlí, 2012.