Barnadeildin okkar hefur gengið í gegnum miklar breytingar nú í haust. Allar hillur, bækur, blöð og bangsar voru flutt niður á 1. hæð og undanfarið hefur uppröðun og skipulag verið í mótun. Núna sér fyrir endann á þessu hjá okkur og allt að verða komið á sinn stað.
Vetrarstarfið er komið í fullan gang með sögustundum, leikskólaheimsóknum, bangsadögum o.fl. o.fl.
Við bjóðum alla bókaorma, stóra og smáa, hjartanlega velkomna og viljum gjarnan heyra hvað ykkur finnst um nýja umhverfið