Bangsasýning á Amtsbókasafninu - - leitað er eftir böngsum hvaðanæva úr heiminum

Nú líður senn að Alþjóðlega bangsadeginum á Amtsbókasafninu. Við höfum undanfarin ár tekið heila viku í að halda upp á daginn og fengið til okkar mikinn fjölda af börnum, haldið bangsasýningar og fjölmargt fleira skemmtilegt gert.

bangsi

Í ár langar okkur að setja upp bangsasýningu með böngsum víðsvegar að úr heiminum, keypta erlendis eða með sérstök þjóðareinkenni. Því leitum við til ykkar ágætu bæjarbúar með von um að þið eigið, eða vitið um einhverja sem eiga skemmtilega bangsa í fórum sínum sem eru tilbúin til að lána á sýningu hjá okkur. Tekið verður á móti böngsunum á sýninguna föstudaginn 16. október, laugardaginn 17. október og mánudaginn 19. október.

Sýningin verður svo opnuð þriðjudaginn 20. október og mun hún standa til laugardagsins 7. nóvember.

Með von um góð viðbrögð,
Ingibjörg og Þorsteinn



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan