Þann 27. október 2010 er
alþjóðlegi bangsadagurinn haldinn hátíðlegur víða um heim.
Af því tilefni verðum við með stóra bangsasögustund á Amtsbókasafninu á Akureyri
miðvikudaginn 27. október 2010, kl. 17:00.
Bókasafnsbangsinn mætir í heimsókn og les fyrir börnin. Við verðum með bangsagetraun, bangsahappadrætti og ýmsar aðrar bangsauppákomur :)
Hlökkum til að bangsast með ykkur!
Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri