Ljóðabókin Austan um land eftir Sigurð Óskar Pálsson er komin út í nýrri og aukinni útgáfu. Höfundurinn býr á Akureyri en er upprunninn í Borgarfirði eystra.
Útkomu bókarinnar verður fagnað í Amtsbókasafninu á Akureyri laugardaginn 20. nóvember og hefst teitið kl. 15:00. Þar verður höfundurinn kynntur og sagt frá útgáfunni, lesin ljóð úr bókinni og flutt tónlist.
Kaffiveitingar - allir velkomnir!
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi