Sýning á batik og pappírsverkum, unnum af pólsku myndlistarmönnunum Zofia Bisiak og Alexandra Herisz verður opnuð á Amtsbókasafninu á Akureyri mánudaginn 23. ágúst kl. 17. Sýningin er liður í íslensk-pólsku listverkefni, ?Art-platform?
Sýningin mun standa til föstudagsins 27. ágúst og verður opin á afgreiðslutíma safnsins kl. 10-19 alla dagana.