Sunnudagurinn 12. júní nk. er hvítasunnudagur. Hvítasunnan er ein af sameiginlegum höfuðhátíðum kristinnar kirkju og eins og með jólin og páskana, þá er annar í hvítasunnu daginn eftir. Þetta þýðir einfaldlega það að Amtsbókasafnið verður lokað mánudaginn 13. júní. Gleði fyrir þá sem vilja taka myndir og hafa lengur! Svo er 17. hæ hó jibbý jei júní bráðum ...