Amtsbókasafnið hálf-lokað 27. maí til kl. 13:00

Starfsmenn Amtsbókasafnsins á Akureyri ætla að viða að sér enn meiri fróðleik á svokölluðum fræðslumorgni starfsfólks safnsins. Hann verður haldinn föstudagsmorguninn 27. maí og verður safnið þar af leiðandi ekki með hefðbundna afgreiðslu fyrr en kl. 13:00.

Hægt verður að skila gögnum í svokallaðan skilavagn 10:00-13:00 og einnig skal það árétt að Amts-Kaffi-Ilmur opnar eins og venjulega kl. 10:00.

Við vonum (og vitum ;-) ) að þið takið vel í þessa fræðsluþörf okkar, sem án efa skilar sér til ykkar í formi vitrara og hressara starfsfólks :-)

Munið (vegna 27. maí):
- Hægt að skila efni fram til 13:00
- Amts-Kaffi-Ilmur opnar eins og venjulega kl. 10:00
- Almenn afgreiðsla hefst svo kl. 13:00

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan