Þann 25. október síðastliðinn var fitjað upp á Amtsbókaorminum og er hann því fimm mánaða í dag!
Hann hefur vaxið og dafnað og er nú orðinn rúmir tveir metrar að lengd!
Amtsbókaormurinn er afar litríkur og algerlega einstakur. Hann er prjónaður með frjálsri aðferð úr afgöngum héðan og hvaðan og
það verður gaman að fylgjast með honum lengjast og lengjast á næstu mánuðum.
Margir hafa lagt til garn og einnig hafa margir slegið lykkju á prjón þannig að Amtsbókaormurinn er vaxandi samstarfsverkefni unnið af gestum okkar :-)