Allt í plús

Samsýningin ALLT + varð upphaflega til í samstarfi Myndlistarfélagsins á Akureyri og Sjónlistamiðstöðvarinnar og hét þá Hér, þar og allstaðar, síðan til styttingar Alltið og að lokum ALLT (í) PLÚS (en ekki einhverjum bullandi mínus).

Lagt var upp með að verkin yrðu mun færri og stærri á umferðartorgum, gatnamótum og jafnvel í verslunum, en í vinnsluferlinu tók sýningin stakkaskiptum og tútnaði út eins og blaðra, en samtals 71 myndlistarmenn taka þátt í henni. Hér er ekki um neina venjulega samsýningu að ræða því ekkert þema ræður ríkjum og þátttakendur máttu hvarvetna viðra verk sín nema í Sjónlistamiðstöðinni.

Þannig má segja að myndlistin sé sprengd út í samfélagið í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar. Þetta eru einkasamtöl listamannsins gegnum verk sitt við tiltekinn stað sem hún eða hann ber sterkar taugar til, svo úr verður net örsagna sem bjóða upp á óvænta og mjög persónulega sýn á bæinn.
(texti tekinn af heimasíðu Sjónlistamiðstöðvarinnar á Akureyri: www.sjonlist.is, sem og höfuðmyndin)

- Amtsbókasafnið á Akureyri hýsir m.a. þessi tvö verk hér fyrir neðan:

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan