Óhætt er að segja að sýning Guðlaugs Arasonar á Álfabókum hafi slegið í gegn hjá okkur sumarið 2013.
Nú hefur GARASON raðað saman enn fleiri Álfabókum og ætlar að hafa þær til sýnis og sölu hér á Amtsbókasafninu í júlí og ágúst.
Álfabækurnar heilla bæði stóra og smáa og í þeim má endalaust finna ný og óvænt atriði.
Sýningin opnar mánudaginn 6. júlí - Sjón er sögu ríkari!