Kæru safngestir! Eins og þið hafið tekið eftir, þá er verið að skipta um rúður á austurhlið safnsins okkar yndislega. Eðlilega þá fylgir því smá oggu pínku ponsu hávaði og við biðjumst velvirðingar á því. Um þessar mundir er t.d. ekki mikið (lesist: lítið sem ekkert!) næði á lestrarsalnum.
Það gæti því reynst ykkur betra að vera við borðin í kaffiteríunni. Þar er bjart og gott að vera, netsamband auðvitað og stutt í kaffið hjá stúlkunum í Amts-Kaffi-Ilmi.
Öll læti taka einhvern tíma enda og það er vonandi ekki langt í að þið getið notið útsýnisins í gegnum nýja glugga á 1. og 2. hæðinni, um leið og þið grípið ykkur bók í hönd og slappið af og hafið það gott.
Við þökkum ykkur kærlega fyrir þolinmæðina!