Afmæliskveðjur til Akureyrar

Af alúð bæ mótið...
Af alúð bæ mótið...

Í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar hafa einstaklingar, fyrirtæki, félög, hópar og samtök sent afmælisbænum kveðjur. Margar þeirra eru gerðar af frumleika og listfengi og því við hæfi að setja upp sýningu með öllum þessum skemmtilegu afmæliskveðjum.  

Enn er opið fyrir kveðjur og því ekki of seint að vera með í sögulegri sýningu á afmæliskortum sem opnuð verður þriðjudaginn 4. desember kl. 17:00.

Við bendum öllum vinum Akureyrar, bæði nær og fjær, á að senda má Akureyri afmælikveðju í tilefni tímamótanna. - Við fögnum hverri kveðju en mest gaman er að fá heimagerð kort með persónulegri kveðju!

Senda kortið stílað á Amtsbókasafnið á Akureyri - Brekkugötu 17 - 600 Akureyri - eða komið með kortið og stingið því í rauða afmæliskorta-póstkassann sem staðsettur er í anddyri Amtsbókasafnsins.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan