Afmælisgjöf frá Uppheimum

Uppheimar
Uppheimar

Í tilefni af 150 ára afmælis Akureyrarbæjar hefur bókaforlagið Uppheimar fært Amtsbókasafninu höfðinglega gjöf sem samanstendur af bókum sem starfsmenn safnsins fengu að velja úr útgáfu Uppheima. Aðstandendur Uppheima eru að norðan og bera hlýjar taugar til Akureyrar. Þeim fannst því tilvalið að gleðja gömlu góðu Akureyri og íbúa hennar með því að gefa Amtbókasafninu úrval góðra bóka. Við kunnum þeim góðar þakkir fyrir og lánþegar okkar munu njóta góðs af.

Afmælisgjöf frá Uppheimum

Á myndinni eru Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Kristján Kristjánsson, Ómar Gylfason og Margrét Þorvaldsdóttir ásamt fulltrúum safnsins sem veittu gjöfinni viðtöku, Hólmkell Hreinsson og Guðrún Kristín Jónsdóttir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan