Kæru safngestir!
Það er komið sumar, sól í heiði skín ... og afgreiðslutími Amtsbókasafnsins breytist. Frá og með 1. júní verður opið alla virka daga frá 10:00-19:00. Lokað verður um helgar. Þessi afgreiðslutími mun gilda í sumar eða til og með 31. ágúst.
Athugið að um sumarið verður upplýsingaþjónustu safnsins við lestrarsal lokað kl. 16:00. Fyrirspurnir eftir 16:00 verða afgreiddar næsta virka dag. Við sjáumst hress og kát í sumar og í lokin minnum við ykkur á "Skoppaðu á bókasafnið" og sumarlesturinn - sjá auglýsingar hér til hliðar á viðburðadagatalinu.