Amtsbókasafnið heldur áfram að brydda upp á nýjungum. Nú eru komnir fyrstu þrír svokallaðir "ævintýrapokar fyrir alla fjölskylduna" og eru þeir staðsettir í barnadeildinni.
Í hverjum poka er ein skemmtileg bók og með henni ýmsir fylgihlutir sem hægt er að nýta með bókinni. Saman getur því fjölskyldan lesið, lent í ævintýrum og skapað skemmtilegar minningar.
Í pokanum er plastað A4 blað þar sem fram kemur hvað á að vera í pokanum. Þannig bara eins og með spilin, þegar pokanum er skilað þarf að passa að allt sé í honum sem þar á að vera og spritta!!
Lánstími pokans er 30 dagar.