... nema myndin sé hrútleiðinleg! Kæru safngestir og kvikmyndaelskendur. Mynddiskadeildin tórir enn og við fáum nokkrum sinnum yfir árið nýja mynddiska í safnkostinn okkar.
Það eru nefnilega til kvikmyndaaðdáendur sem líkar það að koma hingað til okkar og velja mynddiska til að taka með sér heim. Safnkosturinn er vel á þriðja þúsund og eitthvað til við allra hæfi.
Mynddiskasafnið inniheldur ekki bara kvikmyndir á hinum ýmsu tungumálum (íslensku, ensku, sænsku, dönsku, kínversku ...) heldur líka sjónvarpsseríur og fræðslumyndir. Allt íslenskt efni (kvikmyndir, fræðslumyndir og sjónvarpsþættir) er í sama rekka, hægra megin við hlið nýju myndanna!
Sjáumst í kvikmyndadeildinni!