Amtsbókasafnið og Hof hafa nú sett upp bókahillu sem notuð verður til að sýna bækur af ýmsu tagi í vetur. Amtsbókasafnið valdi í maí 2011 alls 100 íslenskar bækur sem allir verða að lesa. Núna hefur þeim verið stillt upp á nýrri bókahillu í Hofi og munu þær standa þar út september.
Ekki er hægt að fá bækurnar að láni í Hofi en hjá hillunni er listi yfir allar 100 bækurnar, svo gestir geta mergt við bækur sem þeir vilja lesa og síðan heimsótt okkur á Amtsbókasafnið til að fá bækurnar lánaðar.