Starfsfólk Akureyrarbæjar getur nálgast launaseðla ásamt fleiri upplýsingum á starfsmannavef Akureyrarbæjar www.eg.akureyri.is. Leiðbeiningar um innskráningu á vefinn má finna á starfsmannahandbókinni.
Samkvæmt mannauðsstefnu Akureyrarbæjar á allt nýtt fastráðið starfsfólk að fara á nýliðanámskeið þar sem það er frætt um starfsemi og markmið Akureyrarbæjar ásamt réttindum sínum og skyldum.
Bólusett verður gegn árlegri inflúensu 29. september til 10. október, að báðum dögum meðtöldum, kl. 10.15-12.15 á 6. hæð heilsugæslunnar. Ekki þarf að panta tíma. Mælt er með bólusetningu fyrir alla 60 ára og eldri og aðra sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum.
Skrifstofuskólinn er ætlaður þeim sem vinna almenn skrifstofustörf
eða þeim sem hafa hug á því að skipta um starfsvettvang.Tilgangur
námsleiðarinnar er að auka sjálfstraust námsmanna til að takast á
við almenn skrifstofustörf og stuðla að jákvæðu viðhorfi þeirra til
áframhaldandi náms.
Hægt er að skoða ársskýrslur Akureyrarbæjar frá árinu 2000 á heimasíðu bæjarins og þar á meðal er nýjasta skýrslan sem nær yfir árið 2013. Í ársskýrslunum er fjallað um rekstur allra sviða og stofnana bæjarins og kemur þar margt forvitnilegt fram sem gott er fyrir bæjarbúa og starfsfólk bæjarins að kynna sér.
Starfsfólki Akureyrarbæjar er hér með boðið í gönguferð með leiðsögn um Eyrina miðvikudaginn 10. september nk. Leiðsögumaður verður Jón Ingi Cæsarsson. Ferðin hefst kl. 17.00 í bæjarstjórnarsalnum á fjórðu hæð í Ráðhúsinu þar sem Jón Ingi mun sýna gamlar myndir og boðið verður upp á kaffi. Að því loknu veður genginn hringur um Eyrina undir leiðsögn Jóns Inga. Gangan mun taka 1-1 1/2 klukkutíma.
Veffréttabréf fræðslusetursins Starfsmennt fyrir september 2014 er komið út. Starfsmenn í stéttarfélaginu Kjölur geta sótt námskeið hjá Starfsmennt sér að kostnaðarlausu.
Námsleyfi grunnskólakennara og skólastjórnenda 2015-2016
Námsleyfasjóður grunnskólakennara og skólastjórnenda hefur opnað fyrir umsóknir um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 20152016. Umsækjendum er gert að skila inn umsóknum á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2014.