Ársskýrsla Akureyrarbæjar 2013 komin á netið

Hægt er að skoða ársskýrslur Akureyrarbæjar frá árinu 2000 á heimasíðu bæjarins og þar á meðal er nýjasta skýrslan sem nær yfir árið 2013. Í ársskýrslunum er fjallað um rekstur allra sviða og stofnana bæjarins og kemur þar margt forvitnilegt fram sem gott er fyrir bæjarbúa og starfsfólk bæjarins að kynna sér.

Rekstur bæjarins gekk að flestu leyti vel árið 2013 og með samstilltu átaki hefur starfsfólki bæjarsins smám saman tekist að snúa vörn í sókn eftir áfallið sem reið yfir með efnahagshruni íslensks samfélags árið 2008. Í ávarpi bæjarstjóra, Eiríks Björns Björgvinssonar, í nýjustu árskýrslunni þakkar hann starfsfólki þennan góða árangur og segir síðan orðrétt: „Akureyrarkaupstaður er vel rekið og traust sveitarfélag. Ef við leggjumst öll á árarnar þá getum við stýrt þessu fleyi í heila höfn á komandi misserum. Spyrjum ekki hvað Akureyrarkaupstaður getur gert fyrir okkur, heldur miklu fremur hvað við getum gert til að efla og styrkja bæinn okkar. Frá hruni hefur reksturinn oft verið þungur en nú bendir allt til þess að landið sé að rísa. Horfum björtum augum til framtíðar.“

Hér má skoða ársskýrslur Akureyrarbæjar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan