Gönguferð með leiðsögn um Eyrina

Starfsfólki Akureyrarbæjar er hér með boðið í gönguferð með leiðsögn um Eyrina miðvikudaginn 10. september nk.

Leiðsögumaður verður Jón Ingi Cæsarsson. Ferðin hefst kl. 17.00 í bæjarstjórnarsalnum á fjórðu hæð í Ráðhúsinu þar sem Jón Ingi mun sýna gamlar myndir og boðið verður upp á kaffi. Að því loknu veður genginn hringur um Eyrina undir leiðsögn Jóns Inga. Gangan mun taka 1-1 1/2 klukkutíma.

Ákveðið hefur verið að bjóða upp á ýmsa sameiginlega viðburði fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar sem deildir bæjarins munu skiptast á að skipuleggja.

Starfsmannaþjónustan hefur leikinn og býður upp á hressandi og fræðandi gönguferð um Eyrina.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Með bestu kveðju,
Starfsfólk starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan