Zine-smiðja á bókasafninu!
Komdu og gerðu bókverk: Zine-smiðja á bókasafninu!
Þann 5.ágúst verður zine smiðja á Amtsbókasafninu kl. 16:30. Á staðnum verða gömul tímarit, bækur, pappír, pennar, skæri, lím og allt tilheyrandi til þess að skapa lifandi og spennandi bókverk. Öllum þátttakendum býðst að gefa Amtsbókasafninu sitt zine og verða þau þá skráð á safninu og til útláns fyrir áhugasama. Þetta er frábært tækifæri til þess að taka þátt í starfi bókasafnsins með beinum hætti ásamt því að það er alltaf gaman að hittast og skapa.
14.07.2021 - 13:04
Lestrar 103