Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Heilsupistill Heilsuverndar

Heilsupistill Heilsuverndar

Nýjasti heilsupistill heilsuverndar ber yfirskriftina ferðalög og heilsa og er þar fjallað um mikilvægi þess að leita sér upplýsinga um heilsuvernd og bólusetningar áður en haldið er í ferðalag til annarra heimsálfa, s.s. Afríku, Asíu og S-Ameríku. Í pistlinum er einnig sett fram með hnitmiðuðum hætti algeng vandamál/sjúkdómar og mikilvæg atriði sem hafa þarf í huga þegar ferðast er um heiminn. HÉR má nálgast pistilinn í heild sinni.
Lesa fréttina Heilsupistill Heilsuverndar
Menningarhúsið Hof. Mynd: Auðunn Níelsson

Opin ráðstefna um snemmtæka íhlutun í málefnum barna 8. maí

Velferðarráðuneytið stendur fyrir opinni ráðstefnu um snemmtæka íhlutun í málefnum barna á Íslandi, SIMBI, þann 8. maí n.k. á Hilton Reykjavík Nordica kl. 9.-16. Aðgangur að ráðstefnunni er öllum opinn og ókeypis. Streymt verður frá ráðstefnunni. Á Akureyri verður streymt á skjá í salnum Hömrum í Hofi frá kl.9-16. Eru Akureyringar og nærsveitarmenn hvattir til að nýta sér aðstöðuna í Hömrum í Hofi því þannig geta þeir t.d. tekið þátt í umræðum sín á milli á vinnufundi ráðstefnunnar (sjá dagskrá). Vinsamlega takið daginn frá, hægt er að skoða dagskrá og skrá sig á: www.hof-radstefna.is
Lesa fréttina Opin ráðstefna um snemmtæka íhlutun í málefnum barna 8. maí
Heilsupistill Heilsuverndar

Heilsupistill Heilsuverndar

Í nýjasta heilsupistli frá Heilsuvernd er legslímuflakk (endometríosa) til umfjöllunar. Með hnitmiðuðum hætti er sagt frá hvað legslímuflakk er, hver helstu einkenni eru, hvernig hægt er að greina hana og hver meðferðarúrræðin eru. Fyrir áhugasama má nálgast pistilinn í heild sinni með því að smella HÉR.
Lesa fréttina Heilsupistill Heilsuverndar
Bæklingur um áreitni á íslensku, ensku og pólsku

Bæklingur um áreitni á íslensku, ensku og pólsku

Vakin er athygli á endurútgáfu bæklings á íslensku, ensku og pólsku þar sem farið er yfir skilgreiningu kynbundinnar áreitni, kynferðislegrar áreitni og ofbeldis. Sett eru fram dæmi um hegðun sem fellur undir þessar skilgreiningar og hverjar skyldur atvinnurekenda vegna slíkrar hegðunar er. Að bæklingnum standa ASÍ, BSRB, KÍ, BHM, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa
Lesa fréttina Bæklingur um áreitni á íslensku, ensku og pólsku
Heilsupistill Heilsuverndar

Heilsupistill Heilsuverndar

Í nýjasta heilsupistli Heilsuverndar er fjallað um kólesteról - þar er að finna gagnlegar upplýsingar um slæmt kólesteról, gott kólesteról og hvernig hægt er að lækka kólesteról. Áhugasamir geta kynnt sér pistilinn með því að smella HÉR.
Lesa fréttina Heilsupistill Heilsuverndar
Milljarður rís 2018 í Hofi 16. mars

Milljarður rís 2018 í Hofi 16. mars

Dansbylting gegn kynbundnu ofbeldi í Hofi 16. mars kl. 12.00 í boði UN Women á Íslandi. Ofbeldi gegn konum er vandamál um allan heim – tökum afstöðu gegn ofbeldinu, mætum og dönsum! Upplýsingar um viðburðinn má finna á Facebook. Milljarður rís er dansbylting sem haldin er víða um heim. Með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karla, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Í krafti #MeToo byltingarinnar hafa konur úr ólíkum geirum stigið fram og lýst því kynbundna ofbeldi og kynferðislegu áreitni sem þær hafa þurft að þola. Byltingin er hafin og ofbeldi í garð kvenna verður ekki lengur liðið. Nú er því komið að því – í Hofi verða sláandi frásagnir kvenna af kynbundnu ofbeldi fluttar. Í sjötta sinn ætlum við að sameinast í yfir 200 löndum og dansa fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og sýna þeim samstöðu. Í fyrra komu saman um fjögur þúsund manns á öllum aldri um allt land í tilefni af Milljarður rís. Dansað var af krafti um allt land; í Reykjavík, Akureyri, Seyðisfirði, Reykjanesbæ, Neskaupstað, Höfn í Hornafirði, Egilsstöðum og Borgarnesi. Samtakamátturinn var allsráðandi! Af gefnu tilefni hvetur UN Women á Íslandi alla til að senda smsið KONUR í 1900 (1900 kr.) og lýsa upp myrkur Róhingjakvenna í Bangladess sem þurft að þola ofsóknir og gróft ofbeldi. #fokkofbeldi #milljardurris18
Lesa fréttina Milljarður rís 2018 í Hofi 16. mars
Árshátíð Akureyrarbæjar - myndband

Árshátíð Akureyrarbæjar - myndband

Árshátíð Akureyrarbæjar verður haldin þann 17.mars 2018 í íþróttahöllinni á Akureyri. Þemað er diskó og veislustjóri er Jóhannes Ásbjörnsson. Hljómsveitin Hamrabandið mun svo sjá um að skemmta árshátíðargestum. Húsið opnar kl. 18:30 og hátíðin verður formlega sett kl. 19:00. Árshátíðarnefndin sendi frá sér í dag skemmtilegt myndband en þar má sjá Eirík Björn Björgvinsson bæjarstjóra ásamt starfsfólki ráðhússins gera sig tilbúin fyrir Árshátíðina.
Lesa fréttina Árshátíð Akureyrarbæjar - myndband

Úrslit í vinnustaðakeppni Akureyrarbæjar í lífshlaupinu

Vinnustaðakeppni Akureyrarbæjar í Lífshlaupinu fór fram í fjórða sinn nú í febrúar þar sem fjölmargir vinnustaðir tóku þátt. Að þessu sinni var keppnin jöfn og skemmtleg og réðist það ekki fyrr en á lokametrunum hverjir stóðu uppi sem sigurvegarar. Það fór svo að starfólk Oddeyrarskóla og á Fræðslusviði enduðu á því að skipta fyrsta og öðru sæti jafnt á milli sín en í þriðja sætið í báðum flokkum varð Heilsuleikskólinn Krógaból. Heilsuráð Akureyrarbæjar heimsótti sigurvegarana föstudaginn 2. mars og veitt þeim verðlaun fyrir þennan frábæra árangur. Heilsuráð þakkar öllum sem tóku þátt og hvetur alla til að halda áfram að rækta sitt lífshlaupinu.
Lesa fréttina Úrslit í vinnustaðakeppni Akureyrarbæjar í lífshlaupinu
Fjölbreytt námskeið í boði hjá SÍMEY

Fjölbreytt námskeið í boði hjá SÍMEY

Vakin er athyli á fjölbreyttum námskeiðum sem eru í boði hjá SÍMEY.  Sjá nánar hér. Hlutverk SÍMEY er að efla símenntun og auka samstarf milli atvinnulífs og skóla, og styrkja þannig samkeppnishæfni fyrirtækja og stofnana á svæðinu. SÍMEY stuðlar að því að einstaklingar á Eyjafjarðarsvæðinu hafi aðgang að hagnýtri þekkingu á öllum skólastigum. Samstarfsaðilar eru allir þeir sem vinna að eða bjóða upp á fræðslu, innan eða utan hefðbundinna menntastofnana, hvort sem um er að ræða starfsmenntun, tómstundanám, bóklega eða verklega fræðslu. SÍMEY leggur áherslu á að miðla, safna og vinna úr upplýsingum og skapa þannig möguleika á markvissari og árangursríkari uppbyggingu á fræðslu. Minnum ykkur á að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum.
Lesa fréttina Fjölbreytt námskeið í boði hjá SÍMEY
Heilsupistill Heilsuverndar

Heilsupistill Heilsuverndar

Nýjasti heilsupistill Heilsuverndar ber heitið Rafrettan og heilsan - líkt og heitið ber með sér er umfjöllunarefnið rafrettur, endilega kynnið ykkur fróðleik febrúarmánaðar með því að smella HÉR.
Lesa fréttina Heilsupistill Heilsuverndar
#metoo: Hvetjum konur og karla til að klæðast svörtu 31.janúar 2018

#metoo: Hvetjum konur og karla til að klæðast svörtu 31.janúar 2018

Stjórn FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu, hvetur allar konur í íslensku atvinnulífi til að klæðast svörtu miðvikudaginn 31.janúar nk. Með þessu er markmiðið að konur sýni samstöðu sína og stuðning við #metoo byltinguna. Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA: ,,Nú þegar hefur fjöldinn allur af hugrökkum konum stigið fram með sínar sögur. Þetta eru konur á öllum sviðum atvinnulífs,ins á öllum aldri og alls staðar af á landinu. Engin þessara kvenna stendur ein í sinni baráttu því að í #metoo stöndum við konurnar saman sem ein heild. Og í þetta sinn þarf samfélagið að skilja að okkur er full alvara með að hér muni ná fram að ganga, varanlegar breytingar í viðhorfum og valdbeitingu. Þess vegna klæðumst við konurnar svörtu þann 31.janúar næstkomandi.” Viðurkenningarhátíð FKA verður haldin 31.janúar en þetta er stærsti viðburður FKA á hverju ári. Með því að velja þennan dag vill stjórn FKA undirstrika hversu mikilvægt það er að #metoo byltingunni verði fylgt eftir í orði, í verki og af þeirri virðingu sem hún á skilið. Hvetjum konur og karla hjá Akureyrarbæ til að klæðast svörtu 31.janúar 2018 til að sýna samstöðu með #metoo byltingunni.
Lesa fréttina #metoo: Hvetjum konur og karla til að klæðast svörtu 31.janúar 2018