Úrslit í vinnustaðakeppni Akureyrarbæjar í lífshlaupinu

Vinnustaðakeppni Akureyrarbæjar í Lífshlaupinu fór fram í fjórða sinn nú í febrúar þar sem fjölmargir vinnustaðir tóku þátt.

Að þessu sinni var keppnin jöfn og skemmtleg og réðist það ekki fyrr en á lokametrunum hverjir stóðu uppi sem sigurvegarar.

Það fór svo að starfólk Oddeyrarskóla og á Fræðslusviði enduðu á því að skipta fyrsta og öðru sæti jafnt á milli sín en í þriðja sætið í báðum flokkum varð Heilsuleikskólinn Krógaból. Heilsuráð Akureyrarbæjar heimsótti sigurvegarana föstudaginn 2. mars og veitt þeim verðlaun fyrir þennan frábæra árangur.

Heilsuráð þakkar öllum sem tóku þátt og hvetur alla til að halda áfram að rækta sitt lífshlaupinu.

Hér að neðan eru helstu niðurstöður í keppninni!!

Þess má geta að Oddeyrarskóli var einnig í þriðja sæti á landsvísu sem er gríðarlega góður árangur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan